Utanríkisráðherra Indlands í heimsókn á Akureyri
Utanríkisráðherra Indlands, frú Preneet Kaur, kom ásamt fylgdarliði í opinbera heimsókn til Akureyrar fyrir helgi. Hún kynnti sér starfsemi Háskólans á Akureyri og þá tóku Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar á móti henni í Ráðhúsinu og kynntu henni samfélagið og áfangastaðinn Akureyri.
Í kjölfarið var farið í heimsókn í Menningarhúsið HOF þar sem henni gafst m.a. kostur á að líta við á æfingu Leikfélags Akureyrar á Rocky Horror sem frumsýnt verður um næstu helgi. Frá Akureyri lá leiðin í skoðunarferð um Mývatn og nágrenni.



