
Einnig hefur verið ákveðið að hafa sama matseðil í öllum leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar. Meginmarkmiðið með þeirri breytingu er að tryggja að öll skólabörn fái hollan og næringraríkan hádegisverð. Matseðillinn mun ná yfir sjö vikur í senn og verður mjög sýnilegur á heimasíðum skólanna. Hægt verður að skoða matseðilinn fyrir hvern dag og sjá innihaldslýsingu máltíðanna og einnig útreiknað næringargildi þeirra sem unnið verður af sérfræðingum.
Akureyrarbær hefur gert samning við birgja er annast sölu á kjötvörum, fiski og ávöxtum og grænmeti. Ákveðin krafa var gerð um gæði vörunnar og verður fylgst með að gæðin standist kröfurnar. Samið hefur verið við sérfræðinga um eftirlit með gæðum hráefnisins.
Handbók Lýðheilsustöðvar fyrir leikskólaeldhús má nálgast hér: http://www2.lydheilsustod.is/media/manneldi/utgefid/Handbok_leikskolaeldhus_april_2009.pdf


