N4 - fyrir þig

39 þrep tilnefnd til áhorfendaverðlauna Grímunnar í kvöld Símakosning er hafin um áhorfendaverðlaun Grímunnar 2010. Fimm sýningar sem urðu efstar í

39 þrep tilnefnd til áhorfendaverðlauna Grímunnar í kvöld

Mynd: Leikfélag Akureyrar
Mynd: Leikfélag Akureyrar
Símakosning er hafin um áhorfendaverðlaun Grímunnar 2010. Fimm sýningar sem urðu efstar í netkosningu eru tilnefndar til verðlauna sem sýning leikársins 2009-10 að mati áhorfenda, meðal þeirra er sýningin "39 Þrep" sem sýnt var hjá Leikfélagi Akureyrar liðinn vetur. Þrír heppnir þátttakendur í símakosningunni eiga þess kost að vinna árskort fyrir tvo í leikhúsið; Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og á sýningar Leikfélags Akureyrar. Úrslitin verða kynnt í beinni útsendingu í lok Grímuhátíðarinnar á Stöð 2 miðvikudagskvöldið 16. júní.

Símtalið kostar 100 krónur. Haft verður samband við vinningshafa eftir helgi.

Eftirfarandi sýningar eru tilnefndar til áhorfendaverðlaunanna 2010:

39 ÞREP
símanúmer 900 1201

FAUST
símanúmer 900 1202

FJÖLSKYLDAN - ÁGÚST Í OSAGE-SÝSLU
símanúmer 900 1203

GAURAGANGUR
símanúmer 900 1204

SKOPPA OG SKRÍTLA Á TÍMAFLAKKI
símanúmer 900 1205



föstudagur 10. febrúar - 08:52
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf