Almennt - miðvikudagur 27.janúar 2010

Ólafur Karl Óskarsson
"Ég fæddist þann 23. september 2008. Ég fæddist með VACTERL Association en það eru margvíslegir fæðingargallar. Ég er með klumbufót hægra megin, hægri mjöðmin úr lið, of mörg rifbein hægra megin. Ég er með afmyndun á hryggjarliðum frá spjaldhrygg og niður úr sem veldur því að ég sveigist til hægri. Einnig vantar mig rófubeinið. Ég er með bakflæði en það tengist víst þessum göllum. Ég fæddist ekki með endaþarm og er þar af leiðandi með colostóma."
"Ég er líka með mjög þrönga þvagrás og get því ekki pissað eins og aðrir strákar. Ég er með þvagstóma sem kemur raunar beint út frá nýranu. Já og þá er komið að stærsta vandamálinu mínu. Ég er nefnilega bara með eitt nýra sem starfar langt undir getu og er þar af leiðandi með alvarlega nýrnabilun. Ég þarf í nýrnaígræðslu og er hún áætluð á næsta ári. Pabbi minn ætlar að gefa mér annað sitt og er ég rosalega heppinn að hafa gjafa við hendina. Þegar ég varð eins árs var ég búinn að fara í 5 aðgerðir og alls konar rannsóknir og myndatökur sem útheimtu meðal annars svæfingu.
Einu sinni í mánuði fer ég suður með pabba og mömmu að hitta Viðar nýrnasérfræðinginn minn. Ég fer um það bil einu sinni í viku í eftirlit hjá barnalækni á FSA. Ég fer 3 í viku í sjúkraþjálfun og 1 sinni í viku í iðjuþjálfun. Þann 7. desember var gerð aðgerð á hægri mjöðminni minni til að setja hana í lið og gekk það ágætlega og nú þarf ég að vera í gifsi frá mitti og niður í ca. 5 - 6 mánuði.
Ég veit að þetta er ansi mikið sem er lagt á einn lítinn strák og fjölskyldu hans en við höfum öll staðið okkur eins og hetjur og ekki síst stóri bróðir minn hann Róbert.
En það er nú einu sinni þannig að mín þrautaganga er rétt að hefjast og á næstu árum er mikið sem hægt er og verður gert fyrir mig svo mér líði nú sem allra best. Þrátt fyrir allt þá er ég bara lítill strákur sem sér ekki sólina fyrir stóra bróður og er mjög geðgóður og glaðlyndur strákur."
Foreldrar Ólafs eru Óskar Árnason og Ásrún Hersteinsdóttir.
Stóri bróðir Ólafs er Róbert Alexander Ásrúnarson.
STYRKTARREIKNINGUR HEFUR VERIÐ OPNAÐUR FYRIR ÓLAF OG FJÖLSKYLDU HANS. HVER KRÓNA SKIPTIR MÁLI.
reikningur í íslandsbanka: 565-14-401412
kennitala: 250867-2989

