Almennt - föstudagur 19.febrúar 2010
Laugardaginn 20. febrúar verður haldinn í Brekkuskóla kynningarfundur á nýju deiliskipulagi fyrir austurhluta miðbæjar Akureyrar. Fundurinn verður
frá kl. 13.30 til 15.00. Bæjaryfirvöld, skipulagshönnuðir frá Greame Massie Architects og aðrir ráðgjafar munu kynna skipulagstillögunina og
svara fyrirspurnum.
- Af hverju þarf deiliskipulag af miðbænum? Er þörf á breytingum?
- Hverjar eru lykiláherslur skipulagsins?
- Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á Glerárgötu?
- Hvernig eru bílastæðamál leyst?
- Hvar og hvað er fyrirhugað að byggja?
- Af hverju síki og vatnasvæði?
- Er kostnaðurinn ekki of mikill í ljósi efnahagsástandsins?
Boðið verður upp á gönguferð um miðbæinn í lok fundar.
Nánari upplýsingar fást hjá skipulagsdeild í síma 460 1000 og á vef Akureyrarbæjar: www.akureyri.is/midbaer.

