Almennt - miðvikudagur 07.desember 2011

Stjórnendum skólans bárust þessar upplýsingar fyrir nokkru og vilja vegna málsins beina því til foreldra/forráðamanna að ræða við börnin sín um þær hættur sem geta fylgt því að fara upp í bíl til ókunnugra. Þá segir í viðvörun stjórnendanna: "mikilvægt er að kenna börnunum að umgangast ókunnugt fólk, hafa vaðið fyrir neðan sig og varast hættur sem geta leynst víða. Kennarar í skólanum munu einnig ræða þessi mál við sína nemendur."
Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Akureyri virðist vera um einangrað tilfelli að ræða og telur fulltrúi lögreglunnar að ekki sé ástæða fyrir foreldra að hafa sérstakar áhyggjur nú. Hins vegar sé alltaf mikilvægt að brýna öðru hvoru fyrir börnum að þiggja ekki far með ókunnugum.


