N4 - fyrir þig

Allt á fullu í Fjallabyggð - göng, menntaskóli og sundlaug Það má með sanni segja að allt sé á fullu í Fjallabyggð þessa dagana. Stærsta framkvæmdin eru

Allt á fullu í Fjallabyggð - göng, menntaskóli og sundlaug

Klemenz Jónsson sér um dúkalagnir í Menntaskólanum. Mynd:www.625.is
Klemenz Jónsson sér um dúkalagnir í Menntaskólanum. Mynd:www.625.is
Það má með sanni segja að allt sé á fullu í Fjallabyggð þessa dagana. Stærsta framkvæmdin eru auðvitað Héðinsfjarðargöngin sjálf sem verða opnuð í byrjun október. Búið er að malbika göngin, en ýmis frágangsvinna er eftir. Menntaskólinn á Tröllaskaga hefur störf þann 23. ágúst n.k. samkvæmt stundaskrá. Þar hafa iðnaðarmenn verið við störf að undirbúa húsnæðið fyrir veturinn. Að auki standa yfir framkvæmdir við sundlaug bæjarins en hún hefur verið lokuð í allt sumar, sundlaugin ætti að vera klár með nýrri rennibraut fyrir opnun Héðinsfjarðarganga. Það er s.s. líf og fjör í Fjallabyggð þessa dagana.

Verkframvinda Héðinsfjarðarganga  Upplýsingar frá heimasíðu Vegagerðarinnar. (http://www.vegagerdin.is/storframkvaemdir/hedinsfjardargong/framvinda/)

Utan ganga Siglufjörður:

Búið að fjarlægja verkstæðisskemmur og grófmóta vegtengingu að hitaveitu. Umtalsverð viðgerðarvinna eftir í vegskála og eftir að klára fyllingu yfir skála og ganga frá forskeringu og svæðum meðfram vegi í Skútudal.

Göng Siglufjörður - Héðinsfjörður:

Búið að malbika göngin (bæði lög). Unnið við uppsetningu kapalstiga og rafbúnaðs. Axlarfrágangur að byrja.

Utan ganga Héðinsfjörður:

Búið að malbika aðalveg og áningarstað en efra burðarlag og klæðing eftir á tengivegi. Frágangi yfir vegskála að vestan lokið og unnið við frágang fyrir ofan vegskála að austan. Minni háttar frágangur eftir á yfirborði vegskála.

Göng Héðinsfjörður - Ólafsfjörður:

Búið að malbika bæði lög frá munna í Héðinsfirði og um 1,2 km inn. Neðra malbikslag komið um 1 km lengra eða uppá hábungu. Unnið við vegagerð (hreinsun undirstöðu og neðra burðarlag) og lagnir í austanverðum göngum en eftir að leggja um 1,3 km út í munna í Ólafsfirði, af lögnum í efri kanti og þverlagnir. Ásprautun vatnsklæðninga er lokið.

Utan ganga Ólafsfjörður:

Neðra burðarlag er komið á alla vegi og unnið við útrás úr göngum. Minni háttar frágangur eftir á yfirborði vegskála og fylling að vegskála að mestu eftir.

Rafbúnaður:

Lengst komin í Siglufjarðarleggnum. Búið að setja upp 2,6 km af kapalstigum. Uppsetning ljósa er hafin.



föstudagur 10. febrúar - 08:50
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf