N4 - fyrir þig

Björgunarsveitarmenn aðstoða konu ofan Hrafnagils Lögreglan á Akureyri boðaði út björgunarsveitir á svokölluðu svæði 11. um kl 15. í dag vegna konu sem

Björgunarsveitarmenn aðstoða konu ofan Hrafnagils

Lögreglan á Akureyri boðaði út björgunarsveitir á svokölluðu svæði 11. um kl 15. í dag vegna konu sem saknað var við Hrafnagil. Konan sem er á fimmtugsaldri hafði farið í göngutúr snemma í morgun og ekkert hafði til hennar spurst eftir það. Hjálparsveitin Dalbjörg og Súlur björgunarsveit hófu leit á líklegum svæðum næst Hrafnagili. Klukkan 16:30 fundu björgunarsveitarmenn á mótorhjólum konuna í fjalllendi ofan Hrafnagils voru þá yfir 30 björgunarsveitarmenn í leit. Konan fann til slappleika og svima og hafði sofnað, henni var fylgt niður og þar hlúðu björgunarsveitarmenn að henni.


föstudagur 10. febrúar - 08:49
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf