Almennt - föstudagur 09.júlí 2010

Eiríkur Björn Björgvinsson
Eiríkur Björn Björgvinsson fæddist í Reykjavík 6. september 1966. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 1987, lauk íþróttakennaraprófi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1990 og diplómu frá Íþróttaháskólanum í Köln árið 1994 auk diplómaprófs í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000.
Eiríkur Björn var æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996, íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar 1996-2002 og bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði 2002-2010. Eiginkona hans er Alma Jóhanna Árnadóttir, fædd 29. janúar 1969 á Húsavík. Hún er grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Þau eiga þrjá syni: Árna Björn, 13 ára; Birni Eiðar, 2 ára og Hákon Bjarnar, 6 mánaða. Bæjarráð Akureyrar mun fjalla um ráðningu nýs bæjarstjóra og staðfesta hana formlega.
Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segist mjög ánægður með þessa niðurstöðu. “Ég tel að við höfum ráðið mjög hæfan mann til að gegna bæjarstjórastarfinu næstu fjögur árin og hann kemur úr stórum hópi mjög frambærilegra umsækjenda. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sóttu um starfið. Jafnframt óska ég Akureyringum til hamingju með nýja bæjarstjórann og býð Eirík Björn og fjölskyldu velkomin í bæinn aftur,” segir hann.

