
Eiríkur Björn Björgvinsson hóf í dag störf sem bæjarstjóri á Akureyri og hans fyrsta verk var að sitja bæjarráðsfund í morgun. Á fundinum fékk Eiríkur Björn tækifæri til þess að hitta bæjarfulltrúa og þar var einnig gengið frá formlegri ráðningu hans sem bæjarstjóra. Að fundi loknum gekk Eiríkur Björn á milli deilda og heilsaði upp á starfsfólk bæjarins.
Eiríkur Björn Björgvinsson fæddist í Reykjavík 6. september 1966. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 1987, lauk íþróttakennaraprófi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1990 og diplómu frá Íþróttaháskólanum í Köln árið 1994 auk diplómaprófs í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000.Eiríkur Björn var æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996, íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar 1996-2002 og bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði 2002-2010. Eiginkona hans er Alma Jóhanna Árnadóttir, fædd 29. janúar 1969 á Húsavík. Hún er grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Þau eiga þrjá syni: Árna Björn, 13 ára; Birni Eiðar, 2 ára og Hákon Bjarnar, 6 mánaða.
Að sögn Eiríks Björns var dagurinn mjög ánægjulegur. “Fyrsti dagurinn í nýju starfi er alltaf rólegur og í dag hef ég kynnst mörgu góðu starfsfólki sem ég hlakka til að vinna með. Þrátt fyrir að öll sveitarfélög séu nú að ganga í gegnum erfiða tíma eru að mínu mati mörg tækifæri fyrir Akureyri. Hér er byggt á góðum grunni, enda hefur verið unnin mjög góð vinna hjá bænum á undanförnum árum og því er ástæða til bjartsýni,” segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri. (frétt http://www.akureyri.is/)
Á fundi bæjarráðs Akureyrarbæjar í gær var rætt um ráðningu Eiríks. Þar kom þetta m.a. fram:
Edward H. Huijbens áheyrnarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs óskar að eftirfarandi verði bókað:
Í stefnuskrá L-lista stendur: við höfum ekkert að fela og við viljum koma öllu upp á borðið sem gerist hjá Akureyrarbæ.
Það hlýtur því að vera eðlileg krafa að almennir bæjarbúar verði upplýstir um hvernig staðið var að vali svonefndra
valinkunnra Akureyringa sem skipuðu óháða nefnd á vegum L-listans og átti stóran þátt í ráðningu bæjarstjóra
á Akureyri. Vinstri hreyfingin grænt framboð leggur hér með fram formlega beiðni þess efnis að bæjarbúar verði upplýstir um hvert
nefndarfólkið var og hvaða faglegu forsendur voru fyrir vali þeirra.
Svar formanns bæjarráðs:
Geta skal að svokölluð óháð nefnd vann þessi verk fyrir L-listann, lista fólksins, en ekki fyrir Akureyrarbæ.
Eins og opinberlega hefur komið fram á sá hópur fólks sem við fengum til að gefa okkur umsögn um umsækjendur um bæjarstjórastarfið,
að endurspegla þverskurð bæjarbúa.
Var því valið fólk, sem átti að vera:
fulltrúi háskólasamfélagsins,
fulltrúi frá menningu og ferðaiðnaði,
fulltrúi atvinnurekenda,
fulltrúi verkafólks og
fulltrúi starfsfólks Akureyrarbæjar.
Á fundi sem ég hélt með þeim ásamt fulltrúa Capacent 1. júní sl. hét ég þeim nafnleynd, nema þau
ákvæðu sjálf annað. Það loforð hef ég ekki hugsað mér að svíkja og munum við því ekki verða við
þeirri beiðni VG að upplýsa hvaða fólk var í hópnum.

