N4 - fyrir þig

Eiríkur, Jón Gnarr og Rocky Horror á Menningarnótt Akureyri verður sérstakur gestur á Menningarnótt í Reykjavík sem fram fer um helgina.  Byrjað verður

Eiríkur, Jón Gnarr og Rocky Horror á Menningarnótt

Mynd: www.akureyri.is Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, á leiðinni til Reykjavíkur með gjöfina góðu.
Mynd: www.akureyri.is Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, á leiðinni til Reykjavíkur með gjöfina góðu.

Akureyri verður sérstakur gestur á Menningarnótt í Reykjavík sem fram fer um helgina.  Byrjað verður kl. 13:00 í Íslandstjaldinu við Ferðamálastofu á leiðtogafundi Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra og Jóns Gnarr borgarstjóra, þar sem sá fyrrnefndi mun hafa leyndardómsfulla gjöf í farteskinu. Gjöfin verður í senn nytsamleg, falleg og alveg sérstaklega norðlensk!

Í kjölfarið verða svo skemmtilegir viðburðir víða um borgina; Björn Þorláksson bæjarlistamaður les úr verkum sínum í Eymundsson í Austurstræti, Jana María söng- og leikkona flytur dagskrá með lögum Helenar Eyjólfsdóttur í Iðnó og í Íslandstjaldinu, tríóið “Les triples” flytur sömuleiðis gullin lög sveipuð dýrðarljóma í Iðnó og leikarar frá Leikfélagi Akureyrar koma fram í Rocky Horror á risatónleikum við Arnarhól. Þar munu þeir flytja lag úr sýningunni sem frumsýnd verður þann 10. september n.k. í Hofi -menningarhúsi.


Hér að neðan má sjá tímasetningar viðburðanna: 

13.00. Leiðtogafundur í Íslandstjaldinu við Ferðamálastofu að Geirsgötu 9. Bæjarstjórinn á Akureyri hittir borgarstjórann í Reykjavík og hefur með sér leyndardómsfulla gjöf. 

15.00 og 16.30. Bæjarlistamaðurinn viðraður. Björn Þorláksson rithöfundur les úr útkomnum og óbirtum verkum sínum í Eymundsson í Austurstræti. 

16.00. Sögulegir söngfuglar frá Akureyri. Leik- og söngkonan Jana María flytur lög sem akureyski söngfuglinn Helena Eyjólfsdóttir gerði fræg á sínum tíma. Hugljúf stund í tali og tónum í betri stofu Iðnó.

19.30 Sögulegir söngfuglar í Íslandstjaldinu. Jana María hefur upp raust sína að nýju.

20.00. Til allra átta og til baka. Akureyrarsöngtríóið “Les Triples” kemur fram í Iðnó og flytur gullin lög sveipuð dýrðarljóma, borin fram með rjóma.

22.00 Rocky Horror og Leikfélag Akureyrar. Leikarar frá Leikfélagi Akureyrar flytja lag úr sýningunni sem frumsýnd verður í Hofi - menningarhúsi á Akureyri þann 10. september nk.



föstudagur 10. febrúar - 08:49
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf