
Fyrr í mánuðinum óskaði Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Fjölmargar ábendingar bárust sem allar voru skoðaðar auk garða víða um bæinn. Í valnefndinni voru: Guðrún Björgvinsdóttir verkstjóri garðyrkjumála, Ásta Camilla Gylfadóttir landslagsarkitekt, Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins og Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála. Frétt frá www.akureyri.is
Þingvallastræti 27 
Eigendur: Einar Örn Gunnarsson og María Jóhannsdóttir
Gamall garður með fallegri aðkomu þar sem gróður í timburkerum og stéttar eru í aðalhlutverki. Einnig má sjá falleg ljósker sem lífga upp á aðkomuna. Á baklóðinni er mikill gróður, fjölær blóm, tré og runnar sem hefur verið komið mjög snyrtilega fyrir ásamt lítilli tjörn og safnhaugasvæði. Afar snyrtilegur garður sem hirtur er af natni og verður betri með árunum.
Mosateigur 9
Eigendur: Hafsteinn Guðjónsson og Anna M. Helgadóttir
Nýlegur, vel hannaður garður sem byggir á hellum og hleðslum. Aðkoman er hrein og snyrtileg. Hæðamunur lóðarinnar er leystur með plöntufláum og hleðslum. Timburverönd bak við húsið er með góðu útsýni. Sunnan við húsið er hellulagt dvalarsvæði, sem þó er aðeins frá húsinu til þess að nýta sólina betur. Einnig má sjá litlar tjarnir og gosbrunna, góða garðlýsingu og töluvert af gróðri. Mjög snyrtileg lóð í alla staði.
Ægisgata 18 
Eigendur: Árni Ólason og Þóra Angantýsdóttir
Yndislegur gamall garður sem þó hefur verið endurnýjaður frá grunni á síðustu 15 árum. Lóðin er lítil, en vel nýtt. Framgarðurinn er eitt plöntuhaf og gefur þar að líta úrval af mjög gróskumiklum og fjölærum plöntum og runnum. Veröndin sunnan við húsið er smekkleg og hlaðin sumarblómum og rósum. Á baklóð eru einnig fjölær beð og nytjagarður þar sem allar plöntur eru afar vöxtulegar og heilbrigðar. Í heildina er þetta afar fallegur garður sem ber natni eigenda fagurt vitni.
Mjólkursamsalan ehf.
Eigendur: Mjólkursamsalan ehf.
Stór og mikil lóð sem hefur ávallt verið snyrtileg, en mikil endurnýjun hefur átt sér stað á síðustu árum. Aðkoman er mjög skemmtileg með hellulögðum bogastíg og skemmtilegri lýsingu. Gróður er í beðum og kerum og skemmtileg listaverk prýða svæðið. Einnig er sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða og mega önnur fyrirtæki taka sér það til fyrirmyndar.

Fegursta gata bæjarins: Aðalstræti
Hellulagnir og bílastæði við Minjasafnið ásamt lýsingu hafa verið endurnýjuð á síðustu árum og falla vel að gömlu byggðinni. Margir gömlu garðanna eru fallegir auk húsanna sem flest eru í sama stíl. Götumyndin er heillandi allan ársins hring og er Aðalstræti efalaust sú gata sem er mest mynduð af ferðamönnum Akureyrar.
Matjurtagarðar Akureyringa
Akureyringum bauðst í fyrra að leigja matjurtagarð gegn vægu gjaldi og komust færri að en vildu. Í ár var svæðið stækkað og nú fengu allir umsækjendur garð til ræktunar. Innifalið í leiguverðinu voru forræktaðar matjurtir sem ræktaðar voru í ræktunarstöð bæjarins. Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa fylgst náið með umhirðu garðanna hjá leigutökum og ákváðu að veita Helen Teitsson viðurkenningu fyrir vel hirtan matjurtagarð. Hún þótti sýna mikla iðjusemi og vandvirkni og er vel að viðurkenningunni komin.

