
3. júlí: Þorvaldsdalsskokkið.
Göngumenn mæti við Fornhaga í Hörgárdal kl. 9.00, skokkarar kl. 12.00
4. júlí: Glerárdalur / Skjóldalur. Ferðafélag Akureyrar.
Gengið er frá enda Súluvegar við heimari
Hlífá sem leið liggur eftir stikaðri leið inn að Lamba þar sem gott matarhlé verður. Eftir matinn verður haldið áfram upp
Glerárdal yfir Þröskuld í Ytri-Króksdal og niður í Skjóldal alla leið að Ystagerði þar sem ferðin
endar. Fararstjóri: Ingimar Eydal. Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000 Brottför frá FFA kl. 8.00
5. júlí: Súlur frá Hömrum, mæting við bílastæðið á hömrum kl:18:00. Farið á Ytri og Syðri
Súlu, áætlaður ferðatími er 5 tímar. Kr. 3000.-
6. júlí Ystuvíkurfjall. Farið frá FFA kl. 19.00.
Frítt (þeir sem fá far ættu að borga
bílstjóranum 500 kall) og þetta eru ferðir upp á ca. 3 tíma.
7. júlí: Skólavarða. Farið frá FFA kl. 19.00.
Frítt (þeir sem fá far ættu að borga
bílstjóranum 500 kall) og þetta eru ferðir upp á ca. 3 tíma.
8. júlí: Kræðufell. Farið frá FFA kl. 19.00.
Frítt (þeir sem fá far ættu að borga
bílstjóranum 500 kall) og þetta eru ferðir upp á ca. 3 tíma.
9. júlí: Hlíðarfjall. Farið frá FFA kl. 19.00.
Frítt (þeir sem fá far ættu að borga
bílstjóranum 500 kall) og þetta eru ferðir upp á ca. 3 tíma.
10. júlí: Glerárdalshringurinn - 24 tindar.
Glerárdalshringurinn er stór og umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er
árlega í júlí, með um 10 fjöll hærri en 1.400 m og er Kerling hæst þeirra um 1.540 m, gengið er á 24 tinda um 45 km leið með
um 4.500 gönguhækkun. Reikna má með um 20 til 28 klst í gönguna. Allar nánari upplýsingar m.a. varðandi skráningarfrest má finna
á vefsíðu göngunnar 24x24.is undir Hringurinn.
11. júlí: Fuglaskoðunarferð Hrísey - Mæting við Hús Hákarla Jörundar kl:14:00. Gangan tekur um 1,5 klst.
Leiðsögumaður Þorsteinn Þorsteinsson. Verð kr. 1000.

