N4 - fyrir þig

Flyglar komnir í Hof Tveir konsertflyglar voru fluttir í Menningarhúsið Hof í gær. Flyglarnir eru af tveimur tegundum, Steinway flygill annars vegar og

Flyglar komnir í Hof

Tveir konsertflyglar voru fluttir í Menningarhúsið Hof í gær. Flyglarnir eru af tveimur tegundum, Steinway flygill annars vegar og hins vegar Bösendorfer flygill.

Bösendorfer flygillinn er nýr og er framlag KEA til Menningarhússins Hofs en flygillinn er talinn vera með opinn og ljóðrænan tón og henta vel í einleik og kammerspil. Steinway flygillinn eða Ingimarsflygillinn svokallaði er svo hinn flygillinn en safnað var fyrir honum með minningartónleikum um hinn dáða tónlistarmann, Ingimar Eydal sem lést árið 1993. Undanfarin ár hefur flygillinn verið staðsettur í tónlistarhúsi Eyjafjarðarsveitar, Laugarborg, þar sem hann hefur gegnt hlutverki sínu með sóma en nú er komið að því að gestir Hofs munu njóta hans. Flyglarnir eru með ólíka karaktera og valdir með tilliti til salanna í Hofi og notkunarmöguleika í framtíðinni.

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs segir það afar ánægjulegt að geta boðið tvö glæsileg en ólík hljóðfæri til afnota fyrir gesti hússins og að framlag KEA og Tónlistarfélagsins á Akureyri í þessum efnum sé ómetanlegt.

Nú eru tæpar tvær vikur í opnun Menningarhússins Hofs. Á opnunarhelginni sem verður á Akureyrarvöku, er meðal annars á dagskrá Hátíðartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, 29. ágúst kl. 16:00. Á tónleikunum flytur Víkingur Heiðar Ólafsson Píanókonsert op. 16 eftir Edward Grieg og sinfóníu nr. 9 eftir Antonin Dvorák.



föstudagur 10. febrúar - 07:30
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf