
Samkvæmt sóttvarnarlækni er nú meira en helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir svínainflúensunni A (H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009. Sóttvarnalæknir telur að þær aðgerðir sem gripið var til, þar á meðal bólusetning gegn veikinni, hafi komið í veg fyrir sýkingu 30.000 manns og þar með hafi verið afstýrt 100 sjúkrahúsinnlögnum, 10 innlögnum á gjörgæsludeildir sjúkrahúsa og einu dauðsfalli.
Svínainflúensunnar verður ekki vart lengur hérlendis en veikin er hins vegar vaxandi vandamál í mörgum öðrum löndum. Þótt inflúensan sé nú ekki vandamál hér á landi má í ljósi sögulegrar reynslu gera ráð fyrir nýrri bylgju síðar á þessu ári eða á því næsta. Til að koma í veg fyrir hana er ráðlagt að sem flestir láti bólusetja sig. Nóg er til af bóluefni í landinu og fólk er eindregið hvatt til þess að hafa samband við næstu heilsugæslustöð og panta tíma í bólusetningu.
Frétt frá www.akureyri.is

