Guðmundur Baldvin Guðmundsson mun skipa 1. sæti Framsóknarflokksins á Akureyri en hann hlaut 66% gildra atkvæða í fyrsta sætið. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti og Sigfús Arnar Karlsson í því þriðja.
Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara þann 29. maí nk. Gild atkvæði voru 1.064 en auð og ógild 42.
Kosið var í sex efstu sætin og varð niðurstaða prófkjörsins þessi, eftir að tekið hafði verið tillit til óska frambjóðenda og laga Framsóknarflokksins um kynjakvóta færist Guðlaug Kristinsdóttir upp í fimmta sæti og Hannes Karlsson verður í sjöunda sæti.
http://www.framsokn.is/Flokkurinn/Fyrir_fjolmidla/Frettir/?b=1,4979,news_view.html

