
Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir
Veitingastaðurinn Friðrik V í listagilinu á Akureyri er hættur starfsemi, stofnendur
staðarins og meirihlutaeigendur, Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir, tilkynntu þetta á starfsmannafundi í gærkvöldi. Fram
kemur að ástæðan sé
sú að þau sjá ekki rekstrargrundvöll
á sömu forsendum og hingað til, möguleiki hafi verið á því að draga úr gæðum staðarins en sú hugmynd hugnast okkur
hjónum ekki. Friðrik og Arnrún opnuðu staðinn fyrir níu árum við Strandgötu og fluttu starfsemina í gamalt, nýuppgert hús
við Kaupvangsstræti árið 2007. Þau segjast hafa orðið vör við talsverðan samdrátt fyrstu tvo mánuði þessa árs
miðað við sama tíma í fyrra og sjá ekkert í stöðunni sem bendir til þess að hlutirnir muni lagast á Akureyri á næstu
misserum.
Þess vegna telja þau það ábyrga ákvörðun gagnvart starfsfólki
og birgjum að hætta núna.