N4 - fyrir þig

Fyrsti skólameistari Framhaldsskólans við utanverðan Eyjafjörð ráðinn Menntamálaráðherra hefur skipað Láru Stefánsdóttur fyrsta skólameistara í nýja

Fyrsti skólameistari Framhaldsskólans við utanverðan Eyjafjörð ráðinn

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir
Menntamálaráðherra hefur skipað Láru Stefánsdóttur fyrsta skólameistara í nýja framhaldsskólanum við utanverðan Eyjafjörð. Hún er ráðin í stöðuna frá 1.mars, en skólinn verður starfræktur í Ólafsfirði, en kemur engu að síður til með að þjóna öllu eyjafjarðarsvæðinu. Skólinn á að taka til starfa í haust og segist Lára hlakka til að takast á við þetta nýja starf. Sjö sóttu um starfið og átti upphaflega að ráða í stöðuna þann 1.janúar. Lára er með meistarapróf í kennslufræðum og ljósmyndun.


fimmtudagur 9. september - 20:55
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf