N4 - fyrir þig
		<language>is</language>
400 E-töflur fundust í húsleit á Akureyri
    <description>Í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leitina fundust í íbúð rúmlega
400 e-töflur. Einn maður var handtekinn vegna málsins og yfirheyrður. Hann játaði að eiga töflurnar og að hafa ætlað þær til
sölu. Málið er í rannsókn.
Lögreglan vill minna á fíkniefnasímsvarann 800-5005 og netfangið info@rls.is og hvetur fólk til að að
koma þar á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.
Sjallanum breytt í hótel?
    <description>Þórhallur Arnórsson einn eiganda skemmtistaðarins Sjallans á Akureyri staðfesti í samtali við N4 að nú standi yfir söluferli á
Sjallanum, sem enn sé þó ekki lokið. Gangi salan hins vegar eftir verði Sjallanum breytt í hótel.
Stefán Antonsson, sölufulltrúi hjá Fasteignasölunni Þingholti sagði í samtali við N4 að komið væri bindandi kauptilboð á
milli aðila, sem hins vegar væri háð bæði fjármögnun og skipulagsyfirvöldum á Akureyri. Kaupendurnir eru fjárfestar og
byggingaraðilar, en verði Sjallanum breytt í hótel sé ekki komið í ljós hverjir muni reka það. Sjallinn gæti orðið 90 herbergja
hótel, þar sem hugsanlega yrði byggð ein hæð ofan á húsið. Hótelið myndi síðan heita "Hótel Sjallinn", gangi
þær tillögur eftir sem nú eru á teikniborðinu.
Fá útflutningsleyfi fyrir allt kjöt til allra Evrópulanda
    <description>Norðlenska er fyrsta kjötvinnslan á Íslandi sem fær útflutningsleyfi fyrir allar tegundir kjötvara til allra landa Evrópu. Leyfið fékkst
í morgun og strax eftir helgi verður sendur þorramatur til Íslendinga á hinum Norðurlöndunum sem bíða þess lostætis með
óþreyju segir á heimasíðu Norðlenska.
Tónlist Jóns Hlöðvers Áskelssonar í fókus
    <description>Tónverkið Draumur Manúelu eftir Akureyringinn Jón Hlöðver Áskelsson  verður flutt af hinum snjalla flautuleikara, Áshildi Haraldsdóttur
og Íslenska flautukórnum á tónleikum Áshildar í Hörpu, Kaldalóni, kl. 22 annaðkvöld, föstudaginn 27. janúar.
Dósent við Háskólan á Akureyri fær Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis
    <description>Páll Björnsson, dósent við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið
2011 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis, fyrir bók sína Jón forseti allur? Táknmyndir
þjóðhetju frá andláti til samtíðar. Háskólinn á Akureyri óskar Páli hjartanlega til hamingju með verðlaunin
og bendir á að bókin fæst í öllum betri bókabúðum. Það er Sögufélagið sem gaf bókina út. Þetta
kemur fram á vef Háskólans á Akureyri