
Elín komin niður á fornan garð á Tungufelli. Í sniðinu sjást greinileg merki um forna vegghleðslu.
Að undanförnu hafa staðið yfir fornleifarannsóknir á fornum görðum í Svarfaðardal og Árskógsströnd.
Náttúrusetrið á Húsabakka fékk í vor í samstarfi við Elínu Ósk Hreiðarsdóttur fornleifafræðing styrk
úr fornleifasjóði til þessa verkefnis en alls veitti sjóðurinn 13 styrki til fornleifarannsókna í ár. Elín og Gavin Lucas hafa
undanfarna viku grafið í garða í miklum móð á Tungufelli, Sökku, Steindyrum, Hamri og á Stóru-Hámundarstöðum og má
hvarvetna glögglega sjá ummerki eftir gamlar hleðslur. Með öskulagagreiningu má svo fá nokkuð nákvæma aldursgreiningu en við fyrstu
sýn virðastf garðarnir flestir vera ævafornir, jafnvel allt frá landnámsöld að sögn Elínar. Frétt frá heimjasíðu
Dalvíkurbyggðar
www.dalvik.is