Almennt - þriðjudagur 29.júní 2010

Svanfríður Jónasdóttir áfram bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar. Mynd: http://www.kaktus.is/svanfridur/
Lögð er áhersla á góða umgjörð fyrir atvinnurekstur í sveitarfélaginu og fjölbreytta þjónustu við íbúana. Á kjörtímabilinu verður sérstök áhersla á málefni ungmenna og umhverfismál.
Meirihlutinn mun leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórn og að viðhalda traustri stöðu sveitarfélagsins. Einnig að eiga gott samstarf við fólkið, félögin og fyrirtækin í sveitarfélaginu um öll þau verk sem til heilla horfa.
Svanfríður Jónasdóttir verður áfram bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, Kristján Eldjárn Hjartarson, oddviti A listans verður formaður bæjarráðs og Guðmundur St. Jónsson forseti bæjarstjórnar.

