N4 - fyrir þig

Janúarmót Krulludeildar SA: Mammútar sigruðu Krulludeild Skautafélags Akureyrar stóð nú annað árið í röð fyrir eins konar upphitunarmóti fyrir

Janúarmót Krulludeildar SA: Mammútar sigruðu

Á myndinni er lið Mammúta, f.v.: Jón Ingi Sigurðsson, Ólafur Freyr Númason, Jens Kristinn Gíslason og Haraldur Ingólfsson. Á myndina vantar Svein Heiðar Steingrímsson, varamann.
Á myndinni er lið Mammúta, f.v.: Jón Ingi Sigurðsson, Ólafur Freyr Númason, Jens Kristinn Gíslason og Haraldur Ingólfsson. Á myndina vantar Svein Heiðar Steingrímsson, varamann.

Krulludeild Skautafélags Akureyrar stóð nú annað árið í röð fyrir eins konar upphitunarmóti fyrir Íslandsmótið, svokölluðu Janúarmóti. Mótið var stutt, átta liðum var skipt í tvo riðla og síðan léku sigurlið riðlanna til úrslita. Sömu lið áttust við í úrslitum mótsins nú og í fyrra, Mammútar og Garpar. Aftur voru það Mammútar sem höfðu betur eins og í fyrra, sigruðu Garpa að þessu sinni, 8-2. Í leiknum um bronsverðlaun unnu Skytturnar 6-2 sigur á Fífunum.

Íslandsmótið í krullu, það níunda í röðinni, hefst mánudaginn 25. Janúar. Átta lið, öll úr röðum Krulludeildar Skautafélags Akureyrar, taka þátt í mótinu að þessu sinni. Leikin verður tvöföld umferð þessara átta liða, deildarkeppni, og síðan fara fjögur efstu liðin í úrslitakeppni. Deildarkeppninni lýkur mánudaginn 22. mars og verður þá efsta liðið að lokinni þeirri keppni krýnt deildarmeistarar. Úrslitakeppnin fer síðan fram síðar í þeirri viku, föstudaginn 26. og laugardaginn 27. mars og lýkur henni með hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn að kvöldi laugardagsins 27. mars.

Núverandi Íslandsmeistarar eru Mammútar en liðið hefur nú hampað titlinum tvö ár í röð undir stjórn Jóns Inga Sigurðssonar, sem útnefndur var krullumaður ársins 2009. Liðið tók jafnframt þátt í Evrópumótinu nú í desember fyrir Íslands hönd.



föstudagur 10. febrúar - 08:40
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf