Almennt - sunnudagur 14.febrúar 2010
Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að fresta sýningum á söngleiknum Rocky Horror og
frumsýnir verkið 3ja september í hinu glæsilega menningarhúsi Hofi.
frumsýnir verkið 3ja september í hinu glæsilega menningarhúsi Hofi.
Ástæðurnar eru tvær: Annars vegar velgengni 39 þrepa sem gengur fyrir fullu húsi
helgi eftir og helgi, og hins vegar of mikill kostnaður við að búa þessari mögnuðu
sýningu viðeigandi umgjörð í öðru húsnæði. Allar aðstæður í Hofi munu verða eins og
best verður á kosið og því mun draumurinn um viðamikla og glæsilega sýningu á Rocky
Horror rætast með haustinu og vel það.
Þeir frábæru listamenn sem komið hafa að undirbúningi Rocky Horror munu fylgja
sýningunni í Hof.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar

