N4 - fyrir þig

Leita að heitu vatni fyrir Siglfirðinga Eins og fram hefur komið hér á vefnum www.sksiglo.is þá hófust tilraunaboranir í Skarðdal að ósk Rarik fyrir

Leita að heitu vatni fyrir Siglfirðinga

Mynd: www.sksiglo.is
Mynd: www.sksiglo.is

Eins og fram hefur komið hér á vefnum www.sksiglo.is þá hófust tilraunaboranir í Skarðdal að ósk Rarik fyrir nokkru, með það fyrir augum að afla meira af heitu vatni fyrir Siglufjörð. Ekki verið hægt að afhenda nægt heitt vatn á Siglufirði undanfarin ár. Fyrirtæki hafa þurft að minnka og loka fyrir notkun á heitu vatni frá Rarik undanfarin ár osfv. vegna skorts á heitu vatni frá Rarik, þar sem hitaveitu holurnar í Skútudal hafa ekki annað eftirspurn. Nú er þessum borunum lokið með jákvæðum árangri. Boraðar voru tvær 70 metra djúpar holur til hitamælingar sem sýndu jákvæðar niðurstöður sem vísindamenn munu lesa úr. Af þeim rannsóknum loknum verða frekari ákvarðanir um áframhaldandi boranir teknar. Frétt frá www.sksiglo.is



föstudagur 10. febrúar - 08:18
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf