Almennt - mánudagur 23.ágúst 2010
Setningarathöfn Menntaskólans á Tröllaskaga fór fram á laugardaginn í Tjarnaborg í Ólafsfirði að viðstöddu fjölmenni.
Margir tóku til máls við þetta tilefni má þar m.a. nefna samgönguráðherra, þingmennina Björn Val Gíslason og Birki Jón
Jónsson, fulltrúar sveitarfélaganna í Eyjafirði fögnuðu tímamótunum og Rammi hf. afhenti Láru Stefánsdóttur
skólameistara 1.milljón króna peningagjöf í tilefni dagsins. Það var svo Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir sem blessaði
húsið og skólameistari setti skólan formlega. Fyrsti skóladagurinn í hinum nýja framhaldsskóla er svo í dag.
Nánar verður fjallað um setninguna í dag á N4.
Nánar verður fjallað um setninguna í dag á N4.

