N4 - fyrir þig

Mikið um að vera hjá Sigga Gunnars í kvöld! Þáttur Sigga Gunnars er á dagskrá í kvöld eins og önnur

Mikið um að vera hjá Sigga Gunnars í kvöld!

Þáttur Sigga Gunnars er á dagskrá í kvöld eins og önnur fimmtudagskvöld. Það verður EM og Eurovision þema í kvöld. Hjalti Þór kemur í spjall sem er útskrifaður frá HA með B.A. í fjölmiðlafræði og er nú í meistaranámi við sama skóla, en hann sá um heimasíðuna ibs.is (Í blíðu og stríðu.is). Við heyrum allt um upplifun hans á því að vera þarna úti í svona mikilli nálegð við strákana. Svo eru það Hvanndalsbræðurnir okkar sem ætla að gera allt vitlaust í Söngvakeppni Sjónvarpsins næstu helgi og fara alla leið! Við heimsóttum þá á vinnustaðina þeirra og heyrum meðal annars Valmar Hvanndal spila lagið þeirra á kirkjuorgel! Svo er það flott tónlistaratriði frá ungum og efnilegum tónlistarmönnum. Horfðu frá 20:30 í kvöld - N4 Sjónvarp Norðurlands.


laugardagur 13. mars - 14:00
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf