N4 - fyrir þig

Mótmæla breytingum í Hafnastræti (www.betriakureyri.com) Opnuð hefur verið heimasíðan www.betriakureyri.com þar sem skipulagsbreytingum við Hafnarstræti

Mótmæla breytingum í Hafnastræti (www.betriakureyri.com)

Mynd: www.betriakureyri.com
Mynd: www.betriakureyri.com
Opnuð hefur verið heimasíðan www.betriakureyri.com þar sem skipulagsbreytingum við Hafnarstræti er mótmælt. Til stendur að þar verði bensínstöð og útibú KFC á Íslandi. Mótmælin eru svo hljóðandi:

"Þann 29. júní sl. var samþykkt breyting á deiliskipulagi. Með breytingunni eru skilgreindar tvær nýjar lóðir, Hafnarstæti 78 og 80, þar sem á að starfrækja KFC veitingasölu og sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti.

Sjá nánar auglýsingu á breyttu skipulagi og fundargerð bæjarstjórnar 29. júní

Ótvírætt er að þessi fyrirhugaða skyndibita- og eldsneytissala stingur verulega í stúf við sögulega götumynd Akureyrar en um er að ræða lengstu röð húsa í sama stíl sem við eigum frá Græna hatti alveg að Brynju og jafnvel lengra.

Ég undirrituð/undirritaður mótmæli þessari breytingu á deiliskipulagi og skora á bæjaryfirvöld að taka meiri tillit til sögulegar götumyndar Akureyrar við skipulagsákvarðanir."





föstudagur 10. febrúar - 08:52
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf