N4 - fyrir þig

Nóróveirusýking í Hlíð Á nokkrum deildum í Hlíð hefur komið upp bráðsmitandi sýking í meltingarvegi. Vegna þessa hafa sýkingarvarnir verið efldar í Hlíð. 

Nóróveirusýking í Hlíð

Á nokkrum deildum í Hlíð hefur komið upp bráðsmitandi sýking í meltingarvegi. Vegna þessa hafa sýkingarvarnir verið efldar í Hlíð.  Allur samgangur á milli deilda lágmarkaður og gestir eru beðnir um að fresta heimsóknum.

Sjúkraþjálfun, hárgreiðslustofa, fótaaðgerðastofa og félagsstarf er lokað þar til annað verður ákveðið.  Dagþjónustan er opin, en öllum hefur verið greint frá aðstæðum í Hlíð og velur dagþjónustufólkið að halda sig heima. Enn hefur sýkingarinnar ekki orðið vart í Kjarnalundi og Bakkahlíð.


Á heimasíðu Landlæknisembættisins má finna eftirfarandi upplýsingar:

”Iðrasýkingar af völdum nóróveira eru mjög smitandi.  Veirurnar skiljast út í hægðum og uppköstum hinna veiku og berast auðveldlega út í umhverfið og á milli fólks.  Meðgöngutími sýkingarinnar er 12 til 48 klst. og gengur oftast fljótt yfir, á einum til þremur sólarhringum.  Sýkingin getur staðið mun lengur hjá þeim sem eru langveikir og getur gengið nærri öldruðum og langveiku fólki.

Aðgerðir sem grípa þarf til við að hefta útbreiðslu sýkingarinnar eru í senn óþægilegar og kostnaðarsamar.  Einangrun smitaðra, handhreinsun með handþvotti eða sprittun og vönduð þrif í umhverfi hins veika eru allt mikilvægar aðgerðir til að hefta útbreiðslu smits.  Afar áríðandi er að þeir sem eru veikir fari ekki að heimsækja ættingja og vini á sjúkrahús eða öldrunarstofnun meðan á veikindum stendur því slík heimsókn getur hæglega komið af stað faraldri inni á viðkomandi stofnun”.



föstudagur 10. febrúar - 07:33
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf