Nýbyggingin er búin öflugum tækjabúnaði sem bætir alla aðstöðu til náms og kennslu, staðarkennslu sem og fjarkennslu. Hátíðarsalur háskólans rúmar allt að 500 manns í sæti og nú hefur Háskólinn á Akureyri eignast anddyri með aðstöðu til ýmissa uppákoma, þjónustu og samveru. Með bættri aðstöðu fer nú öll kennsla og rannsóknir við HA fram á Sólborgarsvæðinu við Norðurslóð og skapar þannig þekkingarsamfélag í hjarta Akureyrarbæjar.
Að lokinni vígsluathöfn var opið hús í nýja húsnæðinu. Gestum gafst kostur áað kynna sér nýbygginguna, námsframboð og starfsemi fræðasviða og rannsóknarstofnana við Háskólann á Akureyri og taka þátt í tilraunum og skemmta sér. Fjölmargt var í boði og allir gestir óháð aldri fundu eitthvað við sitt hæfi. Meðal dagskrárliða var myndlistarsýning barna fædd 2004 með þemanu: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór og mátti sjá þar afar skemmtilegar útfærslur og vangaveltur barna um framtíðina. Boðið var upp á blóðþrýstings- og blóðsykursmælingar og voru gestir duglegir við að nýta sér þann kost, efnafræðisýningin Galdraseyði í glösum gafst vel fyrir og var sérstaklega vinsæl, glærusýningar þar sem m.a. rannsóknir og verkefni nemenda sem kennara voru kynnt var vel sótt.
Vígsla nýbyggingar og opið hús þótti takast vel í alla staði en gleði og hátíðarstemming einkenndu daginn. Á milli 700-800 manns heimsóttu Háskólann á Akureyri í tilefni dagsins, skemmtu sér og tóku þátt í hinni fjölbreyttu dagskrá sem var í boði.

