
Næstkomandi helgi verður Gulleyjan sýnd í síðasta sinn hjá Leikfélagi Akureyrar. Frumsýnt var í lok janúar og sýnt hefur verið á fullum krafti síðan. Sýningarnar verða því 45 talsins á 12 vikna tímabili þegar yfir lýkur. Upphaflega stóð til að hætta sýningum 21.mars en vegna mikillar aðsóknar var sýningartímabilið lengt um heilan mánuð. Um er að ræða sannkallaða fjölskyldusýningu því að ungir jafnt sem aldnir hafa hópast í Samkomuhúsið til að upplifa sjóræningjana um borð í Hispanjólu syngja og leika.
Auk hefðbundina sýninga hafa verið ýmsir aðrir viðburðir í kringum Gulleyjuna. Á sýningartímabilinu hefur Leikfélag Akureyrar til að mynda boðið á fimmta hundrað grunnskóla- og leikskólabörnum í heimsókn þar sem þau fá að fara inn í leikmynd Gulleyjunnar, þeim sýnt baksviðs og hinum ýmsu leikhústöfrum verið uppljóstrað.
Einnig hélt LA nýlega Gulleyju ævintýramorgunn þar sem börnum var boðið að koma og eiga góða stund með sjóræningjunum. Oft hefur leikfélagið haldið slíka morgna og hafa þeir alltaf verið vinsælir, þó aldrei eins og þessi því salur Samkomuhússins troðfylltist og langur biðlisti myndaðist. Greinilegt var að sjóræningjarnir hafa skapað sér sess í hjörtum barna á svæðinu.
Síðast en ekki síst má nefna að vegna Gulleyjunnar hafa sjóræningjafánar verið áberandi á flaggstöngum Akureyringa sem hafa dregið fána á hún sjóræningjunum til heiðurs. Sérstaklega hvatti leikfélagið bæjarbúa til að flagga um frumsýningarhelgina og þegar fimmþúsundasti gesturinn kom á sýninguna í byrjum mars.
Leikfélag Akureyrar vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa tekið þátt í Gulleyjuævintýrinu með þeim þar meðtaldir eru samstarfsaðillar þeirra úr Borgarleikhúsinu, styrktaraðillar sem og listamenn og aðrir aðstandendur sýningarinnar. Síðast en ekki síst skal leikhúsgestum þakkað fyrir vægast sagt stórkostlegar viðtökur.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Leikfélagi Akureyrar


