N4 - fyrir þig

Síðasti dagur handverkshátíðarinnar í dag Handverkshátíð er enn í fullum gangi og opið í dagmánudag frá klukkan 12-19.   Eyjafjarðarsveit bar í dag

Síðasti dagur handverkshátíðarinnar í dag

Sýnendur eru vel á annað hundað á Handverkshátíð 2010
Sýnendur eru vel á annað hundað á Handverkshátíð 2010

Handverkshátíð er enn í fullum gangi og opið í dagmánudag frá klukkan 12-19.  


Eyjafjarðarsveit bar í dag sigur úr bítum í brunaslöngubolta sem sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu kepptu í.   Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Akureyrarbær og Eyjafjarðarsveit mættu með lið til keppni í blíðskaparveðri í dag.

Úrslit voru kunngjörð í fegurðarsamkeppni sem fór fram á vegum Félags landnámshænsna.  Það var Einar Gíslason frá Brúnum sem átti fegursta hanann sem ber nafnið Blandon.  Guðlaugur M Ingason frá Ólafsfirði átti fallegustu hænuna sem ber nafnið Rósa.

Á hátíðarsamkomu voru verðlaun veitt fyrir sölubás ársins en Volcano design og Krista design fengu þann titil.  Einnig er Handverksmaður ársins 2010 valinn hvert ár og nú var það Ragnar Arason rennismiður frá Höfn í Hornafirði sem fékk þennan eftirsóknarverða titil.




föstudagur 10. febrúar - 08:25
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf