N4 - fyrir þig

Sigurður Ingvi íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 er Sigurður Ingvi Rögnvaldsson en hann er jafnframt golfmaður Hamars

Sigurður Ingvi íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011

Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, íþróttamaður Dalvíkurbyggðar
Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, íþróttamaður Dalvíkurbyggðar

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 er Sigurður Ingvi Rögnvaldsson en hann er jafnframt golfmaður Hamars 2011. Sigurður Ingvi varð á þessu ári fyrsti landsliðsmaður Golfklúbbsins Hamar. Hann tryggði sér sæti í unglingalandsliðinu og keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumóti unglingalandsliða. Þá varð hann í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik, unglinga 17 til 18 ára. Einnig varð hann norðurlandsmeistari í 17 – 18 ári flokki unglinga. Sigurður Ingvi hefur verið fremstur í sínum aldursflokki um árabil og hefur með þrautseigju stundaði æfingar og keppni af miklu kappi og dug.



föstudagur 18. maí - 02:50
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf