Almennt - sunnudagur 14.febrúar 2010
Hér eru niðurstöður úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri sem fram fór 13. febrúar 2010. Við upphaf
kjörfundar voru 1.851 manns á kjörskrá, en við lok kjörfundar voru 1.979 manns á kjörskrá. Í prófkjörinu voru greidd 1.165
atkvæði, auðir seðlar og ógildir voru 20. Kosningaþátttaka var 59%.
Röð frambjóðenda í 1.-6. sæti er eftirfarandi:
1. sæti - Sigrún Björk Jakobsdóttir (762 atkvæði í 1. sæti)
2. sæti - Ólafur Jónsson (477 atkvæði í 1.-2. sæti)
3. sæti - Njáll Trausti Friðbertsson (429 atkvæði í 1.-3. sæti)
4. sæti - Anna Guðný Guðmundsdóttir (452 atkvæði í 1.-4. sæti)
5. sæti - Björn Ingimarsson (528 atkvæði í 1.-5. sæti)
6. sæti - Sigurður Guðmundsson (539 atkvæði í 1.-6. sæti)

