N4 - fyrir þig

Sjóræningjafánum verður flaggað á Akureyri Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum.

Sjóræningjafánum verður flaggað á Akureyri

Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum. Tilefnið er að félagið frumsýnir sjóræningjaleikritið Gulleyjuna næstkomandi föstudagskvöld.
Þessir fánar verða gefnir til allra þeirra sem eiga flaggstöng og vilja sýna sjóræningjunum samstöðu með því að draga fána á hún. Áhugasamir eru hvattir til að nálgast fána í miðasölu Samkomuhússins fyrir frumsýninguna, sem er að kvöldi 27.janúar.




föstudagur 18. maí - 02:53
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf