N4 - fyrir þig

Skapandi sumarstörf á Akureyri Í sumar starfa 24 einstaklingar á aldrinum 15-25 ára í svokölluðum "skapandi sumarstörfum" hjá Akureyrarbæ. Unnið er

Skapandi sumarstörf á Akureyri

Mynd:www.akureyri.is
Mynd:www.akureyri.is
Í sumar starfa 24 einstaklingar á aldrinum 15-25 ára í svokölluðum "skapandi sumarstörfum" hjá Akureyrarbæ. Unnið er undir leiðsögn flokkstjóra í tveimur hópum, annars vegar 15–16 ára unglinga og hins vegar 17-25 ára. Hlutverk hópanna er að lífga upp á mannlífið í miðbænum og gleðja ferðamenn og bæjarbúa með alls kyns uppátækjum. Hóparnir verða starfandi fram yfir verslunarmannahelgi en þetta er í sjöunda skipti sem skapandi sumarstörf eru unnin á vegum vinnuskólans og fara vinsældir hópanna sífellt vaxandi. Myndirnar að neðan voru teknar á dögunum þegar unga fólkið brá á leik í miðbænum.


föstudagur 10. febrúar - 07:55
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf