N4 - fyrir þig

Skíðavertíðin að hefjast í Hlíðarfjalli Ákveðið hefur verið að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli næsta laugardagsmorgun kl. 10.00. Þrjár lyftur verða þá

Skíðavertíðin að hefjast í Hlíðarfjalli

Ákveðið hefur verið að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli næsta laugardagsmorgun kl. 10.00. Þrjár lyftur verða þá opnar, Fjarkinn, Auður og Töfrateppið fyrir börnin. Fljótlega kemur síðan í ljós hvenær hægt verður að troða og opna efra svæðið fyrir ofan Strýtu.


Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að nú kyngi niður snjó í Fjallinu en mest munar þó um að snjóframleiðslan hefur gengið prýðilega síðustu daga og mjög gott undirlag er komið í brautirnar.

Vetrarkort í Hlíðarfjall eru nú til sölu á Glerártorgi og hefur það mælst vel fyrir, enda þægilegt að geta mætt í Fjallið með kortin á reiðum höndum. Áfram verður boðið upp á þrjár skiptihelgar við hin skíðasvæðin í Eyjafirði: á Dalvík og Siglufirði og nú í vetur bætist skíðasvæðið í Tindastóli við Sauðárkrók einnig við. Þannig gefst vetrarkorthöfum kostur á að heimsækja einnig hin skíðasvæðin eina helgi í janúar, febrúar og mars, og bæta þannig enn frekar upplifun sína á vetrarævintýri við Eyjafjörð.



föstudagur 18. maí - 02:54
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf