N4 - fyrir þig

Soroptimistafélagið styrkti Aflið Fyrir jól færðu konur frá Soroptimistafélaginu Aflskonum 100.000kr að gjöf. Soroptimistafélagið er 30 ára í

Soroptimistafélagið styrkti Aflið

Frá hægri; Stjórnarkonur frá Soroptimistafélaginu, Sigríður Ágústsdóttir, Bryndís Þórhallsdóttir og Guðrún Jóhannesdóttir, (áfram frá hægri) Aflskonur; Sæunn Guðmundsdóttir, Anna María Hjálmarsdóttir og Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.

Fyrir jól færðu konur frá Soroptimistafélaginu Aflskonum 100.000kr að gjöf. Soroptimistafélagið er 30 ára í febrúar næstkomandi og eru alþjóðleg samtök en markmið þeirra er að hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti.  Þær hvetja til jafnræðis og jafnréttis, vilja skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi, auka aðgengi að menntun, og efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar.  Það snertir okkur Aflskonur mikið að finna fyrir þessum velvilja úr öllum áttum úr þjóðfélaginu, og erum þakklátar og stoltar fyrir að fá þennan styrk.

föstudagur 18. maí - 02:55
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf