
Atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar fundaði í liðinni viku um stöðu og horfur atvinnumála í sveitarfélaginu. Þar kom m.a. fram að staða fiskvinnslunnar einkennist af óvissu, einkum hjá þeim sem þurfi að treysta á fiskamarkaði, en þar sé minna að hafa og verðin há. Þó megi ætla að öllu samanlögðu að svipað atvinnustig verði í fiskvinnslu á næstunni.
Skortur í íbúðarhúsnæði háir vexti atvinnulífsins
Íþróttamiðstöð verður skila 2.október. Fram kom að mikill samdráttur sé framhundan hjá Tréverki sem er stærsta byggingafyrirtæki bæjarins, en stórum verkefnum sé að ljúka um þessar mundir. Rætt var um mikilvægi þess að íbúðarhúsnæði verði byggt í bænum þar sem skortur á því hái vexti atvinnulífsins.
Góð staða hjá Kalda og markaðsvinna í vatnsverkefni
Fulltrúar Bruggverksmiðjunnar á Árskógströnd segja aukningu hjá fyrirtækinu í framleiðslu bjórs. Þá var rætt um vatnsverkefni þar sem markaðsvinna er í fullum gangi.
Möguleikar í ferðaþjónustunni samhliða opnun Héðinsfjarðarganga
Fólk í Dalvíkurbyggð er fremur ánægt með sumarið og horfir áhugasamt til opnunar Héðinsfjarðarganga en mikill áhugi eru á þeim möguleikum sem þar skapast. Fram kom að bæta þurfi upplýsingaþjónustu á Dalvík. Þá eru Ferðatröll að stækka starfsvæði sitt í Eyjafirði.
Fundargerðin í heild sinni:
Fundur í atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar 1. sept. 2010 haldinn í ráðhúsinu á Dalvík. Fundurinn hófst kl. 16.00
Þessi sátu fundinn: Sveinn Torfason, formaður, Guðmundur St. Jónsson, Björn Snorrason og Anna Dóra Hermannsdóttir.
Einnig sat fundinn Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. Staða atvinnumála og horfur
a) Rætt var um stöðuna í fiskvinnslunni sem einkennist af óvissu, einkum hjá þeim sem þurfa að treysta á fiskmarkaðina, en þar er minna að hafa og verðin há. Þó má ætla að öllu samanlögðu að svipað atvinnustig verði í fiskvinnslu á næstunni.
b) Á fundinn komu Björn Friðþjófsson og Þorsteinn Björnsson og snerist umræðan einkum um stöðu byggingaframkvæmda í sveitarfélaginu. Þorsteinn fór yfir stöðuna og kom fram að íþróttamiðstöð verður skilað 2. okt. Það sem er helst á döfinni á haustinu eru byggingar sumarhúsa og smáhýsa. Ljóst er að mikill samdráttur er hjá Tréverki sem er stærsta byggingafyrirtækið en það er nú að ljúka stórum verkefnum. Farið var yfir þau verkefni sem kunna að skapast og m.a. rætt um mikilvægi þess að íbúðarhúsnæði verði byggt þar sem skortur á því háir vexti atvinnulífsins. Björn og Þorsteinn viku af fundi.
c) Á fundinn komu Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þ. Ólafsson frá Bruggsmiðjunni á Árskógsströnd. Aukning er hjá fyrirtækinu í framleiðslu bjórs og hefst ekki undan. Einnig var rætt um stöðu vatnsverkefnisins en þar er markaðsvinna í gangi. Agnes og Ólafur viku af fundi.
d) Farið var yfir stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu en þar er fók fremur ánægt með sumarið og horfir áhugasamt til opnunar Héðinsfjarðarganga en mikill áhugi er á að þeir möguleikar sem við það skapast verði nýttir og markaðssettir sameiginlega. Almenn bjartsýni er í ferðageiranum. Fram hefur þó komið að bæta þarf upplýsingaþjónustu á Dalvík. Ferðatröll eru að stækka starfsvæðið sitt í Eyjafirðinum sem eykur líkur á meira samstarfi aðila.
Framboð hefur verið að aukast á gistiplássi í sveitarfélaginu. Atvinnumálanefnd leggur áherslu á að mikilvægt er að nýta þá möguleika sem eru í ferðaþjónustu til atvinnuuppbyggingar.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 18
Anna Dóra Hermannsdóttir.
Sveinn Torfason
Guðmundur St. Jónsson
Björn Snorrason
Svanfríður Jónasdóttir skrifaði fundargerð
http://dalvik.is/fundargerdir/3989/Atvinnumalanefnd%2820%29;01092010/default.aspx

