Geir Kristinn Aðalsteinsson, stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sagði í samtali við N4 að Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hafi verið ráðinn í stöðu framkvæmdarstjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar af þeirri einföldu ástæðu að hann hafi verið hæfasti umsækjandinn og einmitt maðurinn sem félagið þyrfti á að halda núna. "Mann eins og Þorvald, kraftmikinn með víðtæka reynslu og þekkingu" sagði Geir. Hann segir þó að stjórnin hafi gert sér grein fyrir því að ráðningin gæti orðið umdeild, hins vegar sjái stjórnarmenn enga ástæðu til að efast um hæfi hans vegna rannsóknar sérstaks saksóknara.
Geir segir að af 37 umsæknendum hafi Capacent hitt 10 og valið úr þeim fjóra sem taldir voru hæfastir. Í kjölfarið hafi meirihluti
stjórnar AFE hitt þá fjóra og metið stöðuna og gögnin sem fyrir lágu með þeim hætti að Þorvaldur Lúðvík
hafi verið hæfasti maðurinn til starfsins.
Fréttatilkynning frá stjórn AFE:
"Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) hefur ráðið Þorvald Lúðvík Sigurjónsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins frá 11. janúar n.k. en fráfarandi framkvæmdastjóri lét af störfum nú um áramót.
Þorvaldur Lúðvík hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, m.a. sem forstjóri Saga Fjárfestingarbanka og nú síðast sem ráðgjafi um fjármögnun sprotafyrirtækja og um markaðssetningu og rekstur smárra og meðalstórra fyrirtækja. Hann lauk prófi í Alþjóðaviðskiptum og tungumálum frá Heriot-Watt University í Edinborg og FH Reutlingen í Þýskalandi árið 1995. Hann sinnti um nokkurra ára skeið kennslu við Háskólann á Akureyri meðfram öðrum störfum. Þorvaldur er jafnframt löggiltur verðbréfamiðlari.
Vegna fyrri starfa sinna hjá Saga Fjárfestingarbanka og sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi til ársins 2006 hefur Þorvaldur Lúðvík aðstoðað Sérstakan Saksóknara í rannsóknum embættisins á málefnum Glitnis og Kaupþings. Stjórn AFE hefur kynnt sér þau mál og þykir ekki ástæða til að efast um hæfi hans vegna þeirra rannsókna.
Stjórn AFE þakkar fráfarandi framkvæmdastjóra, Magnúsi Ásgeirssyni, gott starf fyrir félagið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
F.h. stjórnar AFE, Geir Kr. Aðalsteinsson."


