N4 - fyrir þig

Strandblak á Siglufirði? Á heimasíðu www.siglo.is er þessa skemmtilegu frétt að finna nú. "Strandblaksvallarnefnd blakklúbba á Siglufirði, hefur sótt um

Strandblak á Siglufirði?

Mynd: http://www.theconnectioncenter.com
Mynd: http://www.theconnectioncenter.com
Á heimasíðu www.siglo.is er þessa skemmtilegu frétt að finna nú. "Strandblaksvallarnefnd blakklúbba á Siglufirði, hefur sótt um leyfi til að byggja strandblakvöll við Túngötu á Siglufirði. Það sem vakir fyrir klúbbnum er að koma upp velli sem hægt er að leika á yfir sumartímann, með aðgengi fyrir alla er vilja stunda blak. Fyrirhuguð staðsetning vallarins er á lóð í eigu AFL Sparisjóðs og Fjallabyggðar við Túngötu. Eingöngu er verið að biðja um leyfi fyrir lóðina tímabundið og hefur frístundanefnd samþykkt erindið auk þess sem  skipulags- og umhverfisnefnd og tók nefndin vel í erindið, en vildi að málið færi í grenndarkynningu til húseigenda í nágrenninu.Þetta er skemmtileg hugmynd og flott framtak, það getur myndast mikil stemning í kringum svona standblakvelli og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu."


föstudagur 10. febrúar - 07:37
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf