N4 - fyrir þig

Stúlknablásarasveit á Akureyri Alla næstu viku, 26. júní til 3. júlí, verður stúlknablásarasveit frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Randers, í heimsókn og

Stúlknablásarasveit á Akureyri

Mynd: www.akureyri.is
Mynd: www.akureyri.is
Alla næstu viku, 26. júní til 3. júlí, verður stúlknablásarasveit frá vinabæ Akureyrar í Danmörku, Randers, í heimsókn og munu skemmtilegir tónar hennar berast víða um bæinn. Um er að ræða 30 stúlkur á aldrinum 12-25 ára sem skipa hljómsveitina Randers Pigegarde. Þær koma oft fram í Randers og hafa einnig víða ferðast og haldið tónleika í öðrum löndum.

Hljómsveitin kemur fimm sinnum fram meðan á Akureyrardvölinni stendur en inn á milli fara stúlkurnar í skoðunarferðir um bæinn og nágrennið. Spilað verður á eftirfarandi stöðum og er fólk eindregið hvatt til að mæta á einhvern þessara staða og njóta tónleikanna - það er enginn aðgangseyrir.

Sunnudagurinn 27. júni kl. 14.30-15.30:
Hljómsveitin spilar á Oddeyrarbryggjunni en von er á tveimur skemmtiferðaskipum þennan dag.

Sunnudagurinn 27. júni kl. 16.00-17.00:
Tónleikar við Minjasafnið á Akureyri.

Þriðjudagurinn 29. júní kl. 16.00-17.00:
Hljómsveitin spilar á sundlaugarbakkanum við Sundlaug Akureyrar.

Fimmtudagur 1. júli kl. 14.00-15.00:
Tónleikar á Dvalarheimilinu Hlíð.

Föstudagur 2. júli kl. 15.00-16.00:
Lokatónleikar á Ráðhústorgi.

Nánari upplýsingar um sveitina má sjá á heimasíðu þeirra http://www.randerspigegarde.dk/.



föstudagur 10. febrúar - 07:54
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf