N4 - fyrir þig

Styrktartónleikar á Siglufirði Fimmtudaginn 29.desember, klukkan 20, verða haldnir tónleikar í Siglufjarðarkirkju til styrktar fjölskyldum Elvu Ýrar

Styrktartónleikar á Siglufirði

Fimmtudaginn 29.desember, klukkan 20, verða haldnir tónleikar í Siglufjarðarkirkju til styrktar fjölskyldum Elvu Ýrar Óskarsdóttur og Sölku Heimisdóttur.  Elva Ýr lést eftir alvarlegt umferðarslys að kvöldi 16. nóvember og Salka liggur ennþá mikið slösuð á Fjórðungssjúkarahúsinu á Akureyri.


Tónlistarfólk gefur alla sína vinnu sem og aðrir sem að tónleikunum koma.

Væntanlegt tónlistarfólk: Matti í Pöpum - Eyþór Ingi - Rúnar EFF - Björn Valur - Lára Sóley og Hjalti –Danni Pétur - Gómar - Karlakór Siglufjarðar - Þórarinn Hannesson – Þorsteinn Freyr - Lísa Hauksdóttir –Lísa Gunnarsdóttir– Svava Jónsdóttir - Ólöf Kristín – Tónlistarskóli Fjallabyggðar.

Miðaverð er 2.000 krónur. Þeir sem ekki komast á tónleikana, en vilja gjarnan leggja sitt að mörkum er bent á reikning viðburðarins.  1102-05-405070. Kennitala: 101276-3099. 

Fyrirtækjum / stofnunum og félagasamtökum er bent á styrktarreikninginn, hægt er að senda kveðjur sem lesnar verða upp á tónleikunum. Slíkar kveðjur skal senda á roberth@ismennt.isVeitingastaðurinn Allinn verður með heitt súkkulaði og vöfflur til sölu frá 17:00 fram að tónleikunum þann 29. Allur ágóði rennur óskiptur í styrktarsjóðinn.



föstudagur 18. maí - 02:57
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf