
Dagskráin yfir helgina var fjölbreytt og skemmtileg og nokkuð víst að flestir hafi fundið eitthvað við sitt hæfi. Markaðurinn í miðbænum á laugardeginum var stórglæsilegur og óhætt er að segja að nóg er að framboði í handverki og öðrum munum í Skagafirði. 112 svæðið var staðsett við lögreglustöðina, þar sýndu lögreglan, slökkviliðið og björgunarsveitin græjurnar sínar.
Keppnin um bestu lummurnar tókst vel en það var Helgi Thorarensen sem bar sigur úr bítum. Skagfirðingar tóku götukeppnina alvarlega og skreyttu með sínum hverfislit, það var Hólatún sem vann að þessu sinni og á street ball mótinu unnu EP fresh í 17 ára og eldri flokknum, Kóngarnir í 16 ára og yngri. Hægt er að sjá myndir af sigurliðunum inn á tindastoll.is
Á laugardagskvöldinu voru allir hvattir til að taka þátt í götugrilli og síðan bauð Landsbankamótið upp á barnaskemmtun við Minjahúsið, seinna um kvöldið var slegið upp götuballi þar sem hljómsveitir úr firðinum skemmtu gestum. Hljómsveitin Spútnik lék síðan fyrir dansi á Mælifelli.

