Almennt - þriðjudagur 19.janúar 2010
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir að hleypa rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja í uppnám með hugmyndum um fyrningarleið. „Síðan þetta var boðað hefur enginn friður ríkt og
ríkisstjórnin er komin í stríð við grundvallaratvinnugrein Íslendinga enda ekkert komið fram sem bendir til þess að bæta eigi
fyrirtækjunum það tjón sem af fyrningarleiðinni mun hljótast."
Guðný segir ennfremur: „Það má vel vera að einhver mistök hafi verið gerð þegar aflaheimildum var úthlutað á sínum tíma í samræmi við hugmyndafræði núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis. En að ætla að vinda ofan af þeim nú, nær þrjátíu árum síðar, með því að ríkið leysi til sín veiðiheimildir, sem sjávarútvegsfyrirtækin hafa komið sér upp undanfarin ár með kvótakaupum á frjálsum markaði í samræmi við íslensk lög, er ekki leið til sátta. Þvert á móti," segir m.a. í grein Guðnýjar í Morgunblaðinu í morgun.

