Salur Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri Laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
sýninguna Taktur í sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Guðrún Pálína sýnir teikningar og málverk þar sem
hún vinnur út frá hugmyndinni um lífstaktinn skoðaðan í ljósi ættfræði þar sem telft er saman staðreyndum og
tilbúnum persónum. Sýningin mun standa til og með 19. september og er opin föstu-, lauga- og sunnudaga frá kl. 14.00-17.00 eða eftir samkomulagi við
sýnanda.