Stelpurnar í Þór/KA báru sigurorð af Fylki 3-1 þegar liðin mættust í 14. umferð Pepsi
deild kvenna. Mateja Zver kom heimamönnum á bragðið eftir hálftíma leik og svo fylgdu tvö mörk frá Rakel Hönnudóttur og Vesnu Smiljkovic
í síðari hálfleik. Laufey Björnsdóttur lagaði síðan stöðuna fyrir gestina í uppbótartíma en 3-1 sigur stelpnanna
okkar staðreynd sem lyftu sér upp í 2. sætið með sigrinum. Frétt frá www.thorsport.is
Sjá má viðtöl við Dragan þjálfara og Berglindi leikmann á heimasíðu Þórs
Stelpurnar okkar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og uppskáru mark á 48. Mínútu. Danka gaf þá frábæra sendingu inn á Vesnu sem var komin upp að endamörkum og gaf góða fyrirgjöf fyrir markið. Við fyrirgjöfinni tók Rakel Hönnudóttir sem skallaði knöttinn í netið, 2-0. Stelpurnar okkar héldu uppteknum hætti og sköpuðu sér nokkur góð færi en inn vildi knötturinn ekki. Gestirnir áttu eina hættulega sókn þegar þær áttu skot af 25. metra færi en knöttinn hafnaði í slánni. Þrátt fyrir úrvalsfæri náðu stelpurnar okkar ekki að bæta við marki fyrr en á 88. mínútu og þar var Vesna Smiljkovic að verki . Gestirnir pressuðu þá heimamenn aðeins í von um að minnka forskotið. Rakel Hönnudóttir náði að negla knettinum frá og hreinsunin breyttist skyndilega í stungusendingu þar sem Vesna var fyrst að ná knettinum og var skyndilega sloppin í gegn. Vesna fór framhjá Björk í marki gestanna og renndi knettinum örugglega í netið, 3-0 og heimamenn í góðum málum. Vegna meiðsla og skiptinga bætti Halldór Breiðfjörð dómari leiksins 7 mínútum við venjulegan leiktíma. Fylkiskonur náðu að nýta uppbótartímann með því að klóra í bakkann og var það Laufey Björnsdóttir að verki. Fylkiskonur sóttu þá upp vinstri kantinn og komust upp að endamörkum. Boltinn barst þaðan út í teig og vegna misskilnings í vörn Þórs/KA barst boltinn til Laufeyjar sem átti ekki í erfiðleikum með að setja knöttinn í netið, 3-1. Var spyrna Laufeyar síðasta spyrna leiksins og heimamenn fögnuðu því 3-1 sigri.
Stelpurnar eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína í kvöld því þær spiluðu eins og þær eru vanar
að spila. Þær fóru í alla lausa bolta af krafti, gáfu ekkert eftir og létu gestina ekki trufla sig í að spila sinn bolta. Gestirnir voru
örlítið betri á upphafsmínútum leiksins en eftir fyrstu 20 mínúturnar þá stjórnuðu stelpurnar leiknum, sköpuðu
sér nokkur góð færi og með smá heppni hefðu þær geta skorað fleiri mörk. Þær sýndu einnig mikinn karakter með að
koma svona sterkar til leiks eftir svekkjandi tap gegn Val í síðustu umferð. Stelpurnar eru nú komnar í smá frí frá deildinni en næsti
leikur liðsins er ekki fyrr en 30. ágúst gegn FH.
Viðtal við Dragan Stojanovic þjálfara Þór/KA

