N4 - fyrir þig

Tilkynning frá FSA Með tilvísan í frétt á N4 þann 20.janúar og mbl.is þann 26.janúar um sparnaðaraðgerðir á FSA fyrir árið 2010, kom annars vegar fram að

Tilkynning frá FSA

Með tilvísan í frétt á N4 þann 20.janúar og mbl.is þann 26.janúar um sparnaðaraðgerðir á FSA fyrir árið 2010, kom annars vegar fram að konur þyrftu nú að koma með dömubindi með sér á fæðingadeildina og hins vegar að sjúklingar sem koma til lyfjagjafar á dag- og göngudeild lyflækninga, þurfi að hafa með sér nesti.

Sjúkrahúsið á Akureyri vill hér með leiðrétta þessi atriði sem sett eru fram í fréttinni:

Fæðandi konur þurfa ekki að taka með sér dömubindi á fæðingadeildina.  Engin breyting hefur orðið þar á.

Hvað varðar að sjúklingar þurfi að taka með sér nesti þegar þeir koma til lyfjagjafar, þá skal upplýst að lögð er sérstök áhersla á næringu viðkomandi sjúklingahóps og stendur þeim til boða að eigin vali morgunverður, hádegismatur og síðdegiskaffi á meðferðartíma.  Aftur á móti er þeim heimilt að taka með sér nesti að heiman ef þeir kjósa það.

Þetta leiðréttist hér með.



föstudagur 10. febrúar - 07:22
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf