Almennt - föstudagur 27.janúar 2012

Mynd: www.akureyri.is
Tónleikarnir verða teknir upp og verður útvarpað á rás 1 í þættinum Ópus í RÚV rás 1 kl. 21.10 n.k. mánudagskvöld og verður verkið Draumur Manúela sent út ca. kl. 21.25.
Þetta verk er nú flutt í þriðja skipti af Áshildi og átta manna flautukór, eða Íslenska flautukórnum. Verkið var frumflutt af sömu listamönnum þ. 16. júlí í Skálholti og óhætt að fullyrða að það hafi hrifið marga áheyrendur fram til þessa.
Talsvert er nú umleikis hjá Jóni Hlöðver, því að sunnudaginn 5. febrúar n.k. mun Víkingur Heiðar Ólafsson frumflytja Sex píanólög eftir hann í menningarhúsinu Hofi á fyrstu einleikspíanótónleikar sem þar fara fram, sjá www.menningarhus.is og www.vikingurolafsson.com .
Á efnisskránni verða einnig m.a. Pathetique sónata Beethovens, sónata í a-moll eftir Mozart, einnig íslenskar söngperlur í þeim hrífandi búningi sem Víkingur Heiðar sníður þeim.

