N4 - fyrir þig

Um 100% fagmenntun í grunnskólum Akureyrarbæjar Mánudaginn 23. ágúst sl. hófu 2.596 nemendur vetrarstarfið í grunnskólum Akureyrarbæjar og fjölgar

Um 100% fagmenntun í grunnskólum Akureyrarbæjar

Mánudaginn 23. ágúst sl. hófu 2.596 nemendur vetrarstarfið í grunnskólum Akureyrarbæjar og fjölgar nemendum um 10 á milli skólaára. Þar af eru 257 nemendur í 1. bekk að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Lundarskóli verður fjölmennastur með 487 nemendur og fæstir verða nemendurnir í Grímseyjarskóla eða 12.Mjög vel gekk að manna grunnskólana á Akureyri eins og undanfarin ár. Hlutfall fagmenntaðra er rétt um 100%. (Bókun skólanefndar Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is/)
Mikill stöðugleiki hefur einkennt starfsmannahaldið undanfarin ár, sem er mikill styrkur fyrir allt faglegt starf, því grundvöllur þess byggist á hæfu og metnaðarfullu starfsfólki. Í grunnskólunum eru nú 281 stöðugildi við stjórnun, kennslu og ráðgjöf og 97 stöðugildi við önnur störf s.s. umsjónarmenn húsa, skólaliðar, stuðningsfulltrúar og ritarar. Ríflega 400 starfsmenn sitja í þessum 378 stöðugildum. Stöðugildafjöldi starfsmanna er óbreyttur á milli skólaára. Af þessu má leiða að skólahald verður með svipuðu sniði þetta skólaár og verið hefur. Meðaltal nemenda í námshópi er það sama og undanfarin ár eða um 20 nemendur. Þetta á einnig við þegar skoðaður er fjöldi nemenda pr. stöðugildi kennara sem er í raun betri mælikvarði, því algengt er að fleiri en einn kennari komi samtímis að kennslu hvers námshóps. Fjöldi nemenda pr. stöðugildi kennara var ríflega 10 á sl. skólaári og verður eins á þessu.
Lagt fram til kynningar.


föstudagur 10. febrúar - 08:46
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf