
Mynd www.akureyri.is
Á milli 50-60 manns hafa sótt um stöðu bæjarstjóra á Akureyri, en umsóknarfrestur rann út á miðnætti, endanleg tala mun
væntanlega ekki liggja fyrir fyrr en á morgun þegar allur póstur hefur skilað sér. Geir Kristinn Aðalsteinsson, oddviti L-listans segist sáttur við
fjöldan, en segist þó aðallega spenntur fyrir því að sjá hverjir sóttu um. Geir segir nafnalista verða birtan þegar hann liggur fyrir og
það verði líklega gert á næstu dögum. Stefnt er að því að ráða í stöðuna í kringum
mánaðarmótin.